Þessa vikuna höfum við verið að undirbúa ömmu og afa kaffi sem er á miðvikudaginn 14. okt. Börnin hafa verið að útbúa boðskort sem fara heim á mánudaginn, búið til ömmur og afa og einnig sagt okkur frá því sem ömmur og afar gera.
Á morgun kemur svo presturinn til okkar.
Í art-i höfum við verið að ræða rétt og rangt og hefur öllum gengið vel að skilgreina rétt frá röngu.
Kveðja Halldóra, Móa og Elín