Dagurinn í dag var afskaplega líflegur og skemmtilegur. Öll börnin á Skógarkoti fengu heimsókn. Ömmurnar og afarnir fóru í art-tíma og lærðu að hlusta, tala fallega og að bíða eftir að röðin komi að þeim. Svo var perlað, púslað, spilað, kubbað, sungið og farið á bókasafnið. Takk kærlega fyrir daginn.