Fagnaðarfundur og fleira

Posted in Uncategorized on janúar 31st, 2012 by addasigga — Be the first to comment!

Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur á Heiðarkoti í janúar. Við vorum að undirbúa karladaginn sem var 20. Jan. Við gerðum myndir af körlum og komumst að því að karlar gera ýmislegt. Það komu margir karlar í heimsókn til okkar, pabba, afar og frændur. Takk fyrir komuna.
Núna erum við að undir búa myndverk fyrir myndlistasýninguna sem við opnum á mánudaginn 6 feb á degi leikskólans kl. 9.45. Í Samkaup Strax.
Við erum líka að undirbúa kerlingadaginn sem er 20. Febrúar. Alltaf nóg að gera hjá okkur.
Það var fagnaðarfundur hjá okkur í síðustu viku sem gekk mjög vel. Lékum og fluttum lagið Veiðiferð.
Ég ætlaði að reyna að setja inn myndbandið af fagnaðarfundinum en það gengur eitthvað illa hjá mér. Kemur vonandi síðar.
Kveðja Heiða, Móa og Ragna.

Gleðileg Jól

Posted in Uncategorized on desember 22nd, 2011 by addasigga — Be the first to comment!

Á þriðjudaginn var jólaball hjá okkur. Skógarkots börn flutti fyrir okkur helgileikinn. Við dönsuðum í kringum jólatréð. Stúfur kom í heimsókn til okkar og dansaði með okkur í kringum tréð. Áður en hann fór gaf hann öllum börnum smá gjöf.
Þessa síðustu daga fyrir jól hafa verið rólegir hjá okkur á Heiðarkoti. Við höfum ekki farið í þetta venjulega hópastarf. Heldur höfum við verið að teikn/lita jólamyndir, perla, púsla, o.fl skemmtilegt.
Við óskum ykkur Gleðilegra jóla og farældar í nýju ári.
Jólakveðja Heiða, Móa og Ragna

Leikritið Prumpuhóllinn

Posted in Uncategorized on desember 6th, 2011 by addasigga — Be the first to comment!

Í gær fórum við út í félagsheimili að horfa á leikritið Prumpuhóllinn ásamt yngstastiginu í Flúðaskóla. Allir skemmtu sér vel. Sumir urðu pínulítið hræddir. Það eru komnar myndir inn á myndasvæðið okkar.
Kveðja Heiða, Móa og Ragna.

Alltaf gaman hjá okkur

Posted in Uncategorized on desember 2nd, 2011 by addasigga — Be the first to comment!

Í þessari viku erum við búin að leika okkur mikið úti í snjónum. Í desember hitumst við inn á Móakoti, lesum sögu og syngjum nokkur jólalög og opnum dagatalapakka.
Á fimmtudaginn í næstu viku bökum við piparkökur kl: 9.00. Foreldrar, ömmur, afar, frændur og frænkur eru velkomin að koma og baka með okkur.
Alina kom til okkar í dag og sýndi okkur bók með myndum frá Rúmeníu. Af því það var þjóðhátíðardagur Rúmenu í gær. Síðan sögn Alina og Ástbjört fyrir okkur lög á rúmensku.
Góða helgi. Heiða, Móa og Ragna

Gaman að leika í snjónum :)

Posted in Uncategorized on nóvember 25th, 2011 by addasigga — Be the first to comment!

Loksins kom snjórinn. Það er búið að renna sér mikið, gera snjókarl og smakka snjóinn. Við erum búin að vera að bralla ýmislegt þess vikuna eins og alltaf. Guttar voru í útikennslu. Við fórum og skoðuðum tréð okkar sem við erum að fylgjast með hvernig það breytist eftir árstíðum. Við skoðuðum líka fótsporin í snjónum. Fundum bara kisuspor og svo sporin eftir okkur. Gormar voru í einingakubbum. Að byggja ýmislegt úr kubbunum. Strumpar voru í myndlist. Þau voru að gera jóla jóla sem má ekki segja hvað er.
Það er komin nýr starfsmaður til okkar á Heiðarkoti, hún heitir Ragna og kemur frá Reykholti. Bjóðum við hana velkomna til okkar. Hún mun taka við Strumpunum. Valdís fer yfir á Skógarkot.
Kveðja Heiða, Móa. Valdís og Ragna

Síðasta vika og snjór

Posted in Uncategorized on nóvember 21st, 2011 by addasigga — Be the first to comment!

Í síðustu viku voru Guttar í myndlist. Þeir voru að gera jóla jóla. Strumpar voru í útikennslu. Voru að skoða það sem er í kringum okkur og æfa sig að ganga í þúfum. Gormar voru í tónlist. Voru að hlustuðum á rólega tónlist og fjöruga tónlist og máluðu á meðan þau hlustuðu á tónlistina.
Eiríkur kom svo í heimsókn til okkar á föstudaginn í síðustu viku. Hann sagði okkur sögur úr biblíunni og sögn með okkur nokkur lög.
Það er mikil gleði að fá loksins smá snjóföl. Það er búið að renna sér mikið og smakka snjóinn, hann bragðast alltaf jafn vel.
Það er alltaf gott að hafa kuldagalla, pollagalla, hlýja peysu, nóg að hlýjum sokkum og vettlingum og nóg af aukafötum í töskunni.
Kveðja Heiða, Móa og Valdís.

Síðasta vika

Posted in Uncategorized on nóvember 14th, 2011 by addasigga — Be the first to comment!

Það var nóg að gera hjá okkur á Heiðarkoti í síðustu viku. Strumpar voru í tónlist, þau voru að dansa og hlusta á tónlist. Gormar voru í einingakubbum, byggja hús og girðingar fyrir dýrin og Guttar voru í útikennslu, voru að æfa sig að fara upp og niður brekkur og skoða umhverfið okkar. Á föstudaginn var þjóðhátíðardagur Póllands. Við fengum að fara inn á skógarkot þegar Monika og Izabela komu í heimsókn og sögðu okkur ýmislegt um Pólland.
Kveðja Heiða, Móa og Valdís.

Fagnaðarfundur

Posted in Uncategorized on október 28th, 2011 by addasigga — 1 Comment so far

Í gær var fagnaðarfundur hjá okkur á Heiðarkoti. Við sýndum leikritið um úlfinn og kiðlingana 7 við mikinn fögnuð áhorfenda. Allir skemmtu sér vel. Takk fyrir komuna. Það koma myndir inn á myndasíðuna síðar.
Í dag var frjáls leikur inn, síðan fórum við út að leika okkur í góða veðrinu. Góða helgi.
Kveðja Heiða, Móa og Valdís.

Undirbúningur fyrir fagnaðarfundinn.

Posted in Uncategorized on október 26th, 2011 by addasigga — Be the first to comment!

Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur Heiðarkoti þessa vikuna. Við erum á fullu að undirbúa fagnaðarfundinn sem er á morgun. Það eru allir velkomnir.
Í gær fórum við á bókasafnið. Við skoðuðum bækur, spiluðum spil, svo las Áslaug fyrir okkur sögu.
Kveðja Heiða, Móa og Valdís

Ömmu og afa dagur.

Posted in Uncategorized on október 14th, 2011 by addasigga — Be the first to comment!

Á þriðjudaginn var ömmu og afa dagur. Teiknaðar voru myndir af ömmum og öfum og spáðum í því hvað þau gera. Allflest börnin fengu ömmu, afa eða langömmu í heimsókn. Takk fyrir komuna. Alltaf gaman að fá ykkur í heimsókn.

Nú er hún Hanna Björk farin í veikina frí og í framhaldi af því fer hún í fæðingarorlof.
Heiða er tekin við sem deildarstjóri.

Við erum búin að vera í hópastarfi í vikunni. Guttar eru búnir að vera í útikennslu, Gormar í einingakubba og Strumpar í tónlist. Alltaf nóg að gera hjá okkur á Heiðarkoti.
Það eru komnar myndir inn á heimasíðuna af ömmu og afa degi.
Góða helgi. Kveðja Heiða, Móa og Valdís.