Afmæli
Loksins getum við skrifað í dagbókina okkar, en síðan okkar bilaði og við misstum allar færslur sem hafa verið skrifaðar þannig að nú verðum við að bæta það upp.
Í dag á hún Guðrún hulda afmæli. Við héldum upp á afmælið sungum afmælissönginn og Guðrún Hulda bauð okkur upp á ís. Takk fyrir okkur Guðrún Hulda og eigðu góðan dag:)
Páfagaukarnir voru í tónlist hjá henni Hönnu Björk, þar voru þau að æfa sig að spila á allskonar hljóðfæri, spila hljóðalottó og svo var spilað tröllalagið sívinsæla.
Hestarnir voru í myndlist hjá henni Jónínu þau voru að mála andlit af ýmsum þjóðarbrotum.
Kisur voru í útikennslu hjá Öddu Siggu. Þau fóru í ferðalag í Miðfell heim til Öddu þar vorum við að skoða rjúpur en það er mikið af þeim þar. Þær eru allar að verða mikið hvítar og við töluðum mikið um það að þær skipta um lit og að þær ropa. Við sáum líka kettlinga , hunda, kanínur og svo hittum við hann Magnús í Miðfelli þar sem hann var að svíða sviðalappir það fannst krökkunum skrítinn matur:)
Kv. Adda Sigga, Hanna Björk, Jónína, Alina og Sirrý
Want to Leave a Reply?