Fagnaðarfundur
Það var fagnaðarfundur hjá okkur í morgunn þar sem við sungum dropalagið sem fjallar um það að það er til mörg lönd og fólk af mörgum þjóðernum og allir eiga að vera vinir. Út frá þessu erum við búinn að vera vinna. Í myndlist erum við búinn að vera að búa til fána, dropa og mála andlit. Í tónlist eru þau búinn að æfa sig að syngja um dropana og tala um það að við erum ekki öll eins. Í útikennslunni höfum við verið að tala um löndin í kringum okkur og tengt þau við farfuglana.
Við sameinuðum mydlistina og útkennsluna í morgunn þar sem hestar og páfagaukar fóru í vettvangsferð niður að Litlu Laxá og söfnuðu steinum. Kisur voru í Art og tónlist.
Kv Adda Sigga, Hanna Björk, Jónína, Alina og Sirrý
Want to Leave a Reply?