Meiri snjór meiri snjór…………..

Jæja þá er snjórinn kominn og svaka stuð að fara út að renna og leika sér. Það vantar föt í margar töskur bæði aukaföt til að skipta ef við erum blaut og góða vettlinga (lopa) eru bestir, hosur góðar peysur undir gallana og góða húfu. Við lékum okkur frjálst á stöðvum í morgunn. Það var [...]

Náttfatadiskó

Málað

Í morgunn lékum við okkur frjálst á stöðvum. Síðan var samverustund þar sem við förum yfir hvaða dagur er í dag og hvaða mánuður og við fáum okkur ávexti. Kisur fóru svo með Öddu Siggu óg Páfagaukar með Hönnu Björk í Hrunakrók að vinna smá leyndó og svo máluðu þau myndir á álpappír og bjuggu [...]

Jólalög

Við byrjuðum morguninn á frjálsri stöðvavinnu. Eftir ávaxtastund og Art fóru Kisur í tónlist hjá henni Hönnu þau byrjuðu að æfa jólalög og hlustuðu á Þyrnirós. Páfagaukar voru í myndlist að mála jólaskraut hjá Alinu og Jónínu. Hestar voru í útikennslu hjá Öddu þau fóru í göngutúr að skoða jólaljós en við vorum að tala [...]

Dagur íslenskrar tungu

Í morgunn komu nokkrir krakkar úr 10.bekk í Flúðaskóla og lásu fyrir okkur ljóð í tilefni dagsins.  Það fóru svo allir krakkarnir á Heiðarkoti í göngutúr að hvernum okkar þar sem aðstæður voru skoðaðar og talað um hvað ber að varast við Hverinn og hvað hægt er að gera eins og t.d baka, sjóða egg og [...]

Loksins komnar myndir

Nú eru myndirnar komnar á heimasíðuna. Það er einnig myndband frá fagnaðrfundinum okkar. Í dag var bangsadagur og bangsarnir lærðu margt í dag eins og að sitja kyrrir á myndunum sínum í samverustund, þeir fóru líka í Art með Kisunum og í hvíld. Í morgunn byrjuðum við að gera jólapappír og allir hóparnir voru í [...]

Ferðalag og fleira

Í gær fóru páfagaukar í ferðalag í Miðfell til Öddu Siggu að skoða rjúpur. En þá hafa allir hóparnir farið í rjúpuferð. Við erum öll búinn að sjá fullt af rjúpum og spá í hvernig þær eru á litin núna og svo á sumrin og þær ropa. Við erum svo búinn að skoða og leika við [...]

Fernur

Í morgunn fóru nokkrir krakkar með fernur í þar til gerða endurvinnslutunnu, en deildirnar skiptast á að fara með fernunar. Krakkarnir fóru svo að kaupa rósir handa henni Halldóru á Skógarkoti en hún á afmæli í dag. Það fóru svo allir út að leika sér á leikvellinum í góða veðrinu. Kv Adda Sigga, Hanna Björk, [...]