Jólalög

Við byrjuðum morguninn á frjálsri stöðvavinnu. Eftir ávaxtastund og Art fóru Kisur í tónlist hjá henni Hönnu þau byrjuðu að æfa jólalög og hlustuðu á Þyrnirós. Páfagaukar voru í myndlist að mála jólaskraut hjá Alinu og Jónínu. Hestar voru í útikennslu hjá Öddu þau fóru í göngutúr að skoða jólaljós en við vorum að tala um myrkrið (skammdegið) og ljósinn sem fólk setur upp fyrir jólin. Þau hittu líka hund sem heitir Prins sem á heima á Grund. Við lékum svo úti þar til það var sameiginleg söngstund hjá deildunum, en þar dustuðum við líka rykið af jólalögunum:)

Kv. Adda Sigga


Want to Leave a Reply?