Málað

Í morgunn lékum við okkur frjálst á stöðvum. Síðan var samverustund þar sem við förum yfir hvaða dagur er í dag og hvaða mánuður og við fáum okkur ávexti. Kisur fóru svo með Öddu Siggu óg Páfagaukar með Hönnu Björk í Hrunakrók að vinna smá leyndó og svo máluðu þau myndir á álpappír og bjuggu til ramma. Hestar voru með Jónínu og Alinu inni á Heiðarkoti þau voru líka að vinna leyndó og síðan máluðu þau jólatré og gerðu klakamyndir. Það fóru svo allir út eftir hádegi.

Kv. Adda Sigga


Want to Leave a Reply?

««   ∞   »»