Meiri snjór meiri snjór…………..

Jæja þá er snjórinn kominn og svaka stuð að fara út að renna og leika sér. Það vantar föt í margar töskur bæði aukaföt til að skipta ef við erum blaut og góða vettlinga (lopa) eru bestir, hosur góðar peysur undir gallana og góða húfu. Við lékum okkur frjálst á stöðvum í morgunn. Það var litastöð, einingakubbar, púsl, trédúkkur og bílar. Það var mjög vinsælt að lita jólamyndir. Við syngjum jólalöginn á hverjum degi og krakkarnir eru dugleg að muna eftir textunum.

Kv. Adda Sigga, Hanna Björk, Jónína, Alina og Sirrý.


Want to Leave a Reply?