Mikið um að vera
Það er búið að vera mikið um að vera í vikunni hjá okkur. Hann Patryk Zenon var 3 ára 20.jan og óskum við honum til hamingju með afmælið. Það var svo karladagur hjá okkur í gær þar sem krakkarnir og karlarnir þeirra léku sér saman og máluðu víkingahjálma takk fyrir komuna karlar:) Í dag er bóndadagur og byrjuðum við hann á því að vera saman á Skógar og Heiðarkoti að leika okkur á stöðvum við hittumst svo öll á Heiðarkoti þar sem við sungum saman og fengum okkur ávexti. Við fórum svo í góðan göngutúr og þegar við komum heim þá beið okkar dýrindis hangikjöt og tilheyrandi, hrútspungar og hákarl.
Fagnaðarfundur sem vera átti næsta þriðjudag 26.jan frestast fram á 28.jan.
Kv Adda Sigga
Want to Leave a Reply?