Fagnaðarfundur á morgunn
Í þessari viku höfum við verið á fullu að undirbúa fagnaðarfundinn okkar sem á að vera á morgunn og er mikil spenna. Allir er velkomnir:)
Við erum líka að vinna með markvissa málörvun og við höfum verið að æfa okkur að hlusta og segja svo frá því sem gerðist í sögunni um han Klöru kisu svo höfum við einnig verið að skoða bókina um hann Lubba.
Eftir hádegi á þriðjudögum höfum við verið að fara í vettvangsferðir þar sem við höfum verið að skoða ýmislegt eins og í gær vorum við að skoða vatnið. Það var mikil rigning og við fylgdum vatninu sem rann niður brekkuna að Litlu Laxá og sáum hvar það rann út í ánna við sendum flöskuskeyti með blómi í og töluðum um árnar sem það ætti eftir að fara í þangað til það kæmi út í sjó. Við prófuðum að smakka dropa sem við fundum og fundum lítinn grasorm sem var á lífi og hann var skírður Ormalingur og hann er á Heiðarkoti núna. Í síðustu viku fórum við í ferð í skóginn og niður að Hellisholtalæk þar sem við fundum krummarúm ( sem var gömul blaut pulla úr sófa) þá voru mjög ákveðin í því að koma því í leikskólann og með samvinnu komu þau því alla leið. Flottir Krakkar:) þá tók við heilmikil vinn að finna því góðan stað á leikskólalóðinni þannig að Krummi kæmi nú. Við höfum í framhaldi af þessu verið að syngja krummalög og tal mikið um krumma.
Kv Adda Sigga
Want to Leave a Reply?