Snjór

Það er allt komið á fullt hjá okkur í stöðvavinnunni og það gengur mjög vel að velja. Það sem er í boði þessa vikuna er leiklist þar sem krakkarnir hafa verið að leika í skuggaleikhúsi og svo eru þau búinn að búa til handbrúður og fingrabrúður. Í leirnum erum við að búa til nafnið okkar úr leirnum og í dag fórum við líka í risaeðluleik með leirinn. Í útikennslunni á að fara út og búa til snjókarl og í gær var búinn til hann Vaskur og í dag var farið í skóginn og þar var búinn til stór snjókarl og lítill, þessi litli var tekinn með heim í leikskólann þar sem hann er nú í frystinum:) Eftir hádegi í gær fórum við að renna okkur í frábæru veðri úti á íþróttavelli þar sem við renndum niður af Hryggjarholtinu. Eftir hádegi í dag vorum við í verkefnavinnu þar sem við byrjuðum á því að spila og svo fórum við í óróagerð og smá flokkun. Í Art þessa vikuna og þá síðustu höfum við verið að skoða tilfinningarnar okkar og rifja upp hvað við getum gert þegar við verðum reið:)

Kv Adda Sigga


Want to Leave a Reply?

««   ∞   »»