Páskar

Það er að koma páskar og við höfum verið mjög dugleg að föndra alls kyns páskaskraut eins og unga sem er búnir til úr pappírskúlum, klippa út unga og páskaskraut svo höfum við límt saman og skreytt. Það er líka búið að vera í boði að vera úti þar sem við höfum verið að týna rusl og svo var farið og fundnar greinar til að hengja páskaskraut á. Við erum líka búinn að vera að æfa okkur að telja út og perla páskamyndir. Við erum að vinna með siðfræði í Art tímum í síðustu viku vorum við að vinna með mannasiðaspjöld þar sem við skoðum hvað er rétt og rangt.

Gleðilega Páska

Kv. Adda Sigga, Hanna Björk, Alina og Sirrý