Við erum búinn að vera að leika okkur með vatn í þessari viku. Það er búið að vera rennandi vatn sem má leika sér með, sápukúlur og svo fórum við niður að Litlu Laxá að vaða og sulla.

Kv. Adda Sigga





Í gær fórum við í árlega göngu yfir Miðfell. Á leiðinni fengum við okkur heimsins besta vatn að drekka úr læk og sáum vatnið  uppi á fjallinu þar sáum við álftarpar sem hafði það gott og synti í makindum á vatninu. Við enduðum svo í garðinum hjá henni Öddu Siggu þar sem við grilluðum pylsur og hvíldum okkur. Þeir allra hörðustu fóru svo gangandi heim aftur vestan megin við fjallið ferðinni lauk svo um fjögur leitið þegar síðustu ferðalangarnir komu í hús. Krakkarnir stóðu sig öll frábærlega og eru miklir fjallgöngugarpar:) p.s það eru komnar myndir úr ferðinni í albúmið.

Kv. Adda Sigga



Hún Ásdís Mjöll átti afmæli 16.maí og óskum við henni innilega til hamingju með afmælið:)





Við erum búinn að fara í nokkrar lambaferðir. Það fóru tíu börn út í Haukaholt að skoða lömb með Alinu og fjögur með Öddu Siggu í Miðfell að kíkja á lömbin þar. Það er búinn að vera Garðyrkjuvika hjá okkur núna og við erum búinn að setja niður kartöflur og kryddjurtir og heimsækja garðyrkjustöðvarnar Mela og Silfurtún þar sem við fengum að smakka tómata og  jarðarber.