Í gær fórum við í árlega göngu yfir Miðfell. Á leiðinni fengum við okkur heimsins besta vatn að drekka úr læk og sáum vatnið uppi á fjallinu þar sáum við álftarpar sem hafði það gott og synti í makindum á vatninu. Við enduðum svo í garðinum hjá henni Öddu Siggu þar sem við grilluðum pylsur og hvíldum okkur. Þeir allra hörðustu fóru svo gangandi heim aftur vestan megin við fjallið ferðinni lauk svo um fjögur leitið þegar síðustu ferðalangarnir komu í hús. Krakkarnir stóðu sig öll frábærlega og eru miklir fjallgöngugarpar:) p.s það eru komnar myndir úr ferðinni í albúmið.
Kv. Adda Sigga
0