Berjatínsla
Núna eru flest börn komin á Heiðarkot eftir sumarfrí. Krakkarnir eru glaðir og kátir að hitta vini sína og starfsfólk. Í gær fóum við í berjaleiðangur á Ljónastíginn til Ellu og Júlla, þau buðu okkur að koma að tína ber og við þáðum það með þökkum. Börnin voru mjög dugleg að tína ber, sum borðuðu meira en tíndu:) Hún Ella kom og hjálpaði okkur að tína berin en það eru rifsber og sólber í garðinum hjá henni. Hún gaf okkur svo smá hressingu áður en við héldum af stað aftur í leikskólann. Síðan ætlum við í næstu viku að búa til sultu:)
Kv Hanna, Erla og Steinunn
Want to Leave a Reply?