Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur á Heiðarkoti í janúar. Við vorum að undirbúa karladaginn sem var 20. Jan. Við gerðum myndir af körlum og komumst að því að karlar gera ýmislegt. Það komu margir karlar í heimsókn til okkar, pabba, afar og frændur. Takk fyrir komuna. Núna erum við að [...]
Á þriðjudaginn var jólaball hjá okkur. Skógarkots börn flutti fyrir okkur helgileikinn. Við dönsuðum í kringum jólatréð. Stúfur kom í heimsókn til okkar og dansaði með okkur í kringum tréð. Áður en hann fór gaf hann öllum börnum smá gjöf. Þessa síðustu daga fyrir jól hafa verið rólegir hjá okkur á Heiðarkoti. Við höfum ekki [...]
Í gær fórum við út í félagsheimili að horfa á leikritið Prumpuhóllinn ásamt yngstastiginu í Flúðaskóla. Allir skemmtu sér vel. Sumir urðu pínulítið hræddir. Það eru komnar myndir inn á myndasvæðið okkar. Kveðja Heiða, Móa og Ragna.
Í þessari viku erum við búin að leika okkur mikið úti í snjónum. Í desember hitumst við inn á Móakoti, lesum sögu og syngjum nokkur jólalög og opnum dagatalapakka. Á fimmtudaginn í næstu viku bökum við piparkökur kl: 9.00. Foreldrar, ömmur, afar, frændur og frænkur eru velkomin að koma og baka með okkur. Alina kom [...]
Loksins kom snjórinn. Það er búið að renna sér mikið, gera snjókarl og smakka snjóinn. Við erum búin að vera að bralla ýmislegt þess vikuna eins og alltaf. Guttar voru í útikennslu. Við fórum og skoðuðum tréð okkar sem við erum að fylgjast með hvernig það breytist eftir árstíðum. Við skoðuðum líka fótsporin í snjónum. [...]
Í síðustu viku voru Guttar í myndlist. Þeir voru að gera jóla jóla. Strumpar voru í útikennslu. Voru að skoða það sem er í kringum okkur og æfa sig að ganga í þúfum. Gormar voru í tónlist. Voru að hlustuðum á rólega tónlist og fjöruga tónlist og máluðu á meðan þau hlustuðu á tónlistina. Eiríkur [...]
Það var nóg að gera hjá okkur á Heiðarkoti í síðustu viku. Strumpar voru í tónlist, þau voru að dansa og hlusta á tónlist. Gormar voru í einingakubbum, byggja hús og girðingar fyrir dýrin og Guttar voru í útikennslu, voru að æfa sig að fara upp og niður brekkur og skoða umhverfið okkar. Á föstudaginn [...]
Í gær var fagnaðarfundur hjá okkur á Heiðarkoti. Við sýndum leikritið um úlfinn og kiðlingana 7 við mikinn fögnuð áhorfenda. Allir skemmtu sér vel. Takk fyrir komuna. Það koma myndir inn á myndasíðuna síðar. Í dag var frjáls leikur inn, síðan fórum við út að leika okkur í góða veðrinu. Góða helgi. Kveðja Heiða, Móa [...]
Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur Heiðarkoti þessa vikuna. Við erum á fullu að undirbúa fagnaðarfundinn sem er á morgun. Það eru allir velkomnir. Í gær fórum við á bókasafnið. Við skoðuðum bækur, spiluðum spil, svo las Áslaug fyrir okkur sögu. Kveðja Heiða, Móa og Valdís
Á þriðjudaginn var ömmu og afa dagur. Teiknaðar voru myndir af ömmum og öfum og spáðum í því hvað þau gera. Allflest börnin fengu ömmu, afa eða langömmu í heimsókn. Takk fyrir komuna. Alltaf gaman að fá ykkur í heimsókn. Nú er hún Hanna Björk farin í veikina frí og í framhaldi af því fer [...]