Brunaæfing og nýr strafsmaður

Posted in Uncategorized on október 5th, 2011 by addasigga — 2 Comments

Þessi vika er búin að vera mjög skemmtileg. Á mánudaginn 3.okt var þjóðhátíðardagur Þýskalands og kom hún Silke mamma Adríans Vals til okkar og fræddi okkur um Þýskaland, þá aðallega um Berlín þar sem hún átti heima. Hún sýndi okkur kort af Berlín og sagði okkur um Berlínarmúrinn. Hún kom líka með bók með fullt af myndum og svo söng hún Meistari Jakop á þýsku. Við þökkum henni kærlega fyrir komuna:)

Við erum að fullu að vinna verkefni fyrir ömmu-og afakaffi sem verður 11. okt næstkomandi þriðjudag og þá væri gaman að sjá sem flestar ömmur og afa. Í dag vorum við nýbyrjuð í hópastarfi þegar brunabjallan fór í gang, við vorum búin að ræða hvað við ættum að gera ef bjallan færi í gang. Rýming á leikskólanum rúma 1 mín sem er mjög góður tími. Sum barnanna voru smá skelkuð en allt þetta fór vel. Það komu miklar umræður um hvar brunabjallan væri þegar komið var aftur inn í leiksólann. Það er alltaf gott að æfa sig í þessu og fóru Guttarnir út um gluggann inn á Vinakoti, Gormar voru í Skrautás svo þau fóru þar beint út um dyrnar þar sem er farið út í garð og Strumpar út um útihurðina inn á deild.

Það var að byrja nýr starfsmaður inn á Heiðarkoti og heitir hún Valdís og bjóðum við hana innilega velkomna til okkar.

Það er farið að kóla svolítið svo gott er að hafa hlý föt ásamt kuldagalla meðferðis í leikskólann.

Á föstudaginn 7 .okt  er leikskólinn lokaður vegna haustþings.

Hafið það gott um helgina

Kv Hanna Björk, Heiða, Móeiður og Valdís

 

Allt á fullu:)

Posted in Uncategorized on september 27th, 2011 by addasigga — 3 Comments

Það er alltaf jafn mikið að gera hjá okkur á Heiðarkoti. Núna ætlum við að kynna okkur kýrnar og hvernig allt er í kringum þær. Það væri allavega gaman að geta farið í heimsókn og skoða fjós svo það er stefnan hjá okkur í október. Í þessari viku eru Guttar í einingakubbum og eru þeir að byggja allskonar byggirnar ásamt því að fá trédýrin til að leika með, þeir eru líka að læra hvernig  við förum með einingakubbana og fá spurningar eins og “ má ganga á kubbunm“ og einnig í tiltekt er stærðfræði „náðu í þrjá kubba „t.d.. Gormar eru í útikennsu og eru þau að kanna umhverfið í kringum okkur það koma allsskonar spurninga úti í náttúrinni t.d. „Hvernig verður himininn til“? það er spurning:) Strumpar eru í myndlist og þar erum við að búa til haustmyndir úr þeim efnivið sem við tíndum í síðustu viku. Síðan förum við í ömmu og afa pælingar t.d „Hvað gera ömmur og afar“? það er góð spurning:)

Semsagt það er allt að fara á fullt ú undirbúining fyrir ömmu-og afakaffi , spennandi tímar framundan.

Í þessari viku verður brunaæfing og við vitum ekkert hvernær hún verður, leikskólinn verður rýmdur eftir rýmisáætlunni okkar svo börnin gætu þurft að ganga út eins  og þau eru klædd við ætlum ekki í útföt þar sem við tökum tímann hvað við erum lengi að rýma leikskólann. Alltaf gott að æfa sig í þessu:) svo það er gott að hafa aukasokka í töskunni.

Ef einhverjar spurningar vakna gagnvart brunaæfingunni endilega hafa samband við deildarstjóra eða leikskólastjóra.

Kv Hanna Björk, Heiða og Móeiður

Haustdagar

Posted in Uncategorized on september 22nd, 2011 by addasigga — Be the first to comment!

Það er alltaf jafn mikið að gera hjá okkur á Heiðarkoti. Guttar eru búinir að vera í myndlist í þessari viku þar sem allskonar réttarverkefni voru unnin. Gormar eru búin að vera í tónlist og hreyfingu, þau eru búin að kynnast hljóðfærum hlusta á tónverkið Býfluguna og gera myndverk og syngja fullt af lögum. Strumpar eru búin að vera í útikennslu þar sem þau könnuðu umhverfið okkar á Flúðum, söfnuðu fullt af laufblöðum, fóru í skóginn og fleira.

Í næstu viku ætlum við að breyta um og fara kanna kúnna og allt sem henni fylgir.

Börnin eru búin að njóta veðurblíðunnar síðustu daga og margir skemmtilegir leikir hafa spunnist úti. Þau eru líka búin að vera púsla og perla inni í frjálsa leiknum ásamt því að leika með dúkkurnar og bílana.

Hafið það gott næstu daga.

Kv Hanna Björk, Heiða og Móeiður

Réttir:)

Posted in Uncategorized on september 13th, 2011 by addasigga — 1 Comment so far

Það er búið að vera ræða um réttirnar hjá okkur í hópastarfi síðustu vikur , það er búið að búa til kindur og réttir og skoða einnig á netinu og prenta myndir úr. Síðan er búið að vera byggja réttir í einingakubbum og syngja lög sem tengjast haustinu. Við ætlum að vinna með réttirnar út septebermánuð.

Á föstudaginn 16. sept er leikskólinn lokaður vegna rétta :)

Það er gott að hafa nóg af hlýjum fötum í töskunni því það er farið að kólna aðeins úti.

Kv Hanna Björk, Heiða og Móeiður

Haustferð :)

Posted in Uncategorized on september 8th, 2011 by addasigga — Be the first to comment!

Í gær fórum við í haustferð upp í Tungufellsdal. Við fórum með grænni rútu sem var mjög stór:). Þegar komið var á áfangastað skiptum við okkur niður í hópana okkar og fórum að kanna svæðið, við fundum fullt af berjum kræki og bláberjum sem smökkuðust mjög vel. Þegar allir voru búnir að tína í smástund fengu við nesti sem var súpa, brauð og grænmeti. Eftir matinn var frjáls leikur og fannst flestum mjög spennandi að kíkja í ánna sem var rétt hjá okkur. Þetta var mjög skemmtilegur dagur og voru mörg börn mjög þreytt:) og fengu sér smálúr á leiðinni heim.

Svo ætla ég að minna á myndlistasýningu á uppskeruhátíðinni á laugardaginn í Félagsheimilinu, endilega skoðið grænmetismyndir barnanna.

KV Hanna BJörk

 

 

Haustferð

Posted in Uncategorized on september 6th, 2011 by addasigga — Be the first to comment!

Við erum búin að vera að skoða sauðkindina og réttir í hópastarfi í þessari og síðustu viku. Við ætlum að halda áfram með það á meðan áhugi barnanna er .

Á morgun 7 sept ætlum við í haustferð og veður farið frá leikskólanum kl 10 á rútu upp í Tungufellsdal. Þar ætlum við að týna ber og leika okkur og hafa gaman. Allir foreldrar eru velkomnið með okkur:) áætluð heimkoma er milli 13 og 14.

Hlakka til að sjá sem flesta:)

Það verða öll börn  með grænmetislistaverk á uppsekruhátíðinni sem verður næstu helgi svo endilega gerið ykkur ferð í Félagsheimilið.

Svo alltaf að muna að hafa nóg af fötum í töskum barnanna .

KV Hanna Björk

Hópastaf

Posted in Uncategorized on september 1st, 2011 by addasigga — Be the first to comment!

Í þessari viku byrjuðum við á fullu í hópastarfi. Það er búið að skipta börnunum í 3 hópa og það eru.

Gormar og í þeim hóp eru Ásgeir Ægir, Hjalti, Hilmir og Adrían Valur. Hópstjóri er Heiða

Guttar og í þeim hóp eru Eva Ósk, Aldís Fönn, Kormákur Hjalti,Marcel og Arnór. Hópstjór er Móeiður

Strumpar og í þeim hóp eru Ástbjört, Ragneiður, Regína Margrét og Sigurður Emil. Hópstjór er Hanna Björk

Guttar eru búinir að vera byggja úr einingakubbum og gera grænmetislistaverk.

Gormar voru í útikennslu, þau kíktu út í skóg að týna köngla og svo voru þau að týna rusl ásamt því að gera grænmetislistaverk.

Strumpar voru í myndlist og þar var líka málað grænmetislistaverk ásamt því að gera sjálfsmyn  og svo vorum við að gera réttamyndir .

Við ætlum í næstu viku að halda áfram að vinna með kindina og réttirnar.

Lög vikunnar: Ljónalagið,Dúkkan hennar Dísu,Hérahjónin,Hani krummi, Kalli kónguló, Gráðug kerling og fuglahræðan.

Gott væri að hafa nóg að aukafötum í töskunni það sem veðrið getur verið mismunandi:)

Hafið þið það sem allra best

KV Hanna Björk, Heiða, Móa og Jónína

Berjatínsla :)

Posted in Uncategorized on ágúst 25th, 2011 by addasigga — 1 Comment so far

Í gær fórum við í berjatínslu til Ellu og Júlla en þau búa á Ljónastíg. Við lögðum snemma af stað og allir voru svo duglegir að labba alla leiðina þangað. Þegar við vorum komin á Ljónastíginn og inn í garðinn hjá Ellu og Júlla sáum við fullt að sólberjum en lítið var af rifsberjum. Við tíndum fullt af sólberjum þótt áhuginn hafi verið mismunandi hjá börnunum:).  Eftir að hafa tínt í dagóða stund fóru við til Eydísar sem býr í næsta húsi og þar vorum við svaka heppin hún gaf okkur heitt kakó og kex. Og svo fengu allir að hoppa á trambólíninu hennar. Á leiðinn heim aftur í leikskólann stoppuðum við hjá Ragnhildi og þar fengu við gulrætur að smakka og í nesti. Takk fyrir að taka á móti okkur það var gama að koma í heimsókn:). 

Í dag vorum við að gera sultu það var búið að sjóða berin í gær og látið vera yfir nótt að síast. Börnin fengu að setja sykur í pottinn og hræra sem var mjög spennandi verkefni. Í næstu viku fá öll börnin heim með sér girnilega sólberjasultu.

Það væri gott að hafa strigaskó og stígvél með í leikskólann því það  er ekki gott að vera í hitanum í stígvélum:)

Í næstu viku ætlum við að fara á fullu í hópastarf með allskonar skemmtilegum verkefnum.

Við erum að æfa nokkur skemmtileg lög  og eru þau ferskeytlur(afi minn og amma mín) 5 litlir apar, Litalagið (gulur, rauður) og vinnka með tánum. Þetta eru lögin sem við veðrum að syngja í næstu viku.

Hafið það sem allra best.

Kv Hanna Björk

Afmæli:)

Posted in Uncategorized on ágúst 19th, 2011 by addasigga — Be the first to comment!

Hann Adrían Valur var 2 ára 8.ágúst:)

Við óskum honum innilega til hamingju með daginn.

Kv Allir á Heiðarkoti

Allt að byrja á fullu

Posted in Uncategorized on ágúst 18th, 2011 by addasigga — Be the first to comment!

Krakkarinir eru farnir að týnast inn á Heiðarkot og allir eru glaðir og kátir með að komast aftur að hitta alla vini sína. Það verða 13 börn inn á Heiðarkoti og eru þau fædd 2008 og 2009. Hanna Björk, Heiða og Móeiður verða inn á deildinni ásamt því að Elín kíkir öðru hverju á okkur:) Við æltum að þróa okkur meira áfram í útkennslunni í vetur og vera sem mest úti með hópastarfið.

Spennandi tímar framundan.

Kv Hana Björk