Posted in
Uncategorized on júní 8th, 2011 by addasigga —
Be the first to comment!
Okkur var boðið í heimsókn til Magga Gríms að skoða endurnar hans og drifum við okkur í morgun og buðum Skógarkoti með. Við tókum með okkur stórt brauð og fengu allir að gefa öndunum að borða. Endurnar voru 6 talsins, 3 strákar og 3 stelpur eins og börnin sögðu. Maggi fræddi okkur svo aðeins um endurnar og sagði okkur t.d. að allir karlarnir væru með grænan lit á höfðinu á sér og að stélfjaðrirnar á þeim bognuðu meira upp en á konunum. Skemmtileg heimsókn og nokkrar myndir eru komnar á myndasvæðið

Kv. Freyja
Efnisorð:

Posted in
Uncategorized on júní 7th, 2011 by addasigga —
Be the first to comment!
Þar sem við vorum svo dugleg í gær að ganga yfir Miðfell ákváðum við að nýta okkur blíðuna í dag og stökkva upp á Högnastaðaás. Börnin voru mjög dugleg að ganga og sáu ýmislegt á leiðinni, t.d. krókódíl í ræsinu, pýrenafiska í Litlu-Laxá, furðufugla uppi á ásnum, lítinn sætan hund og sumir sáu húsin sín
Myndir má sjá á myndasvæðinu okkar.

Flottir Heiðarkotskrakkar uppi á Högnastaðaás
Kv. Freyja
Efnisorð:

Posted in
Uncategorized on júní 6th, 2011 by addasigga —
Be the first to comment!
Í morgun lögðum við í hann í fjallgöngu á Miðfell. Lognið var svolítið að flýta sér fannst okkur en sólin fylgdi okkur alla leið. Við fórum af stað kl. 9 héðan frá leikskólanum og stoppuðum fyrst þegar við vorum komin hálfa leið upp á Miðfell. Þar fengum við okkur ávexti, ananas og banana og þeir sem vildu fengu vatn að drekka. Þó nokkur aska þyrlaðist upp úr mosanum sem við gengum í en allir voru rosalega duglegir að harka það af sér og passa augun sín. Klukkan 10:15 vorum við komin að Miðfellsvatni og settumst við þar niður í smá laut og fengum orkustangir (suðusúkkulaði). Við gengum svo meðfram vatninu og tókum eitt stutt vatnsstopp áður en við klifruðum niður brattann fyrir ofan húsið hennar Öddu Siggu. Þangað vorum við komin kl. 11:00. Þar gátu börnin gert ýmislegt skemmtilegt, t.d. farið á trampólín, leikið í sandkassanum og í búinu og rólað sér. Adda Sigga á svo tvo hunda sem voru mjög vinsælir, þær Skellu og Töru. Við fengum svo grillaðar pylsur og djús í hádegismatinn áður en við fórum aftur í leikskólann.
Allir stóðu sig rosalega vel og eru verðandi fjallgöngugarpar
Fleiri myndir má sjá á myndasvæði undralands





Kv. Allir á Heiðarkoti
Efnisorð:

Posted in
Uncategorized on júní 1st, 2011 by addasigga —
Be the first to comment!
Í gær, 31.maí, bauð Rökkvi Snær okkur upp á ís í tilefni þess að hann er að hætta hjá okkur í Undralandi og svo verður hann 3ja ára þann 1.júlí. Við þökkum honum fyrir samveruna og vonum að honum gangi vel á nýjum stað

Í dag, 1.júní, á Sigurður Emil 3ja ára afmæli og kom hann í heimsókn með mömmu sinni og systrum og bauð okkur upp á ís í tilefni dagsins. Þökkum við kærlega fyrir það :)

Í næstu viku er fjallgönguvika hjá okkur og að sjálfsögðu stefnum við á Miðfellsgöngu eins og síðustu ár. Eins og langtímaspáin lítur út núna þá er líklegt að við förum í þá göngu miðvikudaginn 8.júní, en það verður skoðað betur á föstudaginn og foreldrar látnir vita með áframhaldið. Mikilvægt er að börnin komi í góðum skófatnaði alla næstu viku því við munum príla upp á hóla og hæðir hér í nágrenninu, Högnastaðaás og fara í gönguferðir.
Skógarvikan verður stutt hjá okkur að þessu sinni þar sem bæði annar í hvítasunnu og 17.júní falla inn í þá viku. Þá sprellum við og höfum gaman í skóginum okkar.
Vatnsvikan kemur þar á eftir og þá sullum við með vatn og sápukúlur og óskum við eftir bongóblíðu þá vikuna.
Annars eru allir glaðir og kátir hér eins og alltaf
Kv. Freyja
Efnisorð:

Posted in
Uncategorized on maí 24th, 2011 by addasigga —
Be the first to comment!
Í dag var flugdrekadagur hjá okkur í leikskólanum og erum við búin að vera heppin með rokið í dag
Nokkrir flugdrekar tókust á loft sem börnin komu með og svo bjuggum við til okkar eigin flugdreka úr pokum og böndum, og ekki voru þeir síðri, svifu betur ef eitthvað er
Börnin voru mjög glöð með að komast út í dag en fundum við aðeins fyrir í mestu hviðunum að það fauk í augun á okkur, en ekkert var kvartað og vonandi helst ástandið bara svipað. Við höfum að mestu verið í því að skipta börnunum niður á stöðvar síðustu tvo dagana en stefnan er tekin á hópastarf á morgun og tekur Erla þá við Hello Kitty hóp þar sem Ragnheiður Ósk er hætt störfum hjá okkur.
Framundan er svo vorhátíðin okkar á föstudaginn og óskum við eftir blíðviðri á milli kl. 10 og 13 svo við getum verið úti og haft það gaman
Foreldrum er velkomið að koma og taka þátt í alls konar leikjum og sprelli með okkur á vorhátíðinni.
Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband.
Kv. Freyja
Efnisorð:

Posted in
Uncategorized on maí 18th, 2011 by addasigga —
Be the first to comment!
Halló allir
Á mánudaginn átti hún Ásdís Mjöll 5 ára afmæli. Hún bauð okkur upp á ljúffengan ís í tilefni dagsins og þökkum við enn og aftur fyrir það.

Þó svo að vorið sé komið þá er full ástæða fyrir börnin að vera með allan nauðsynlegan fatnað í töskunni, þ.e. bæði stígvél og skó, pollagalla, hlýja peysu, húfu/buff og vettlinga. Veðrið er óútreiknanlegt og þó eitthvað sé til af lánsfatnaði þá höfum við lent í því að eiga ekki til nóg handa öllum.
Vorsýningin okkar árlega er á föstudaginn nk. 20.maí frá kl. 15-17. Að sjálfsögðu eru allir velkomnir og vonumst við til að sjá sem flesta koma og skoða hvað börnin þeirra eru búin að vera að gera í vetur.
Kv. Freyja
Efnisorð:

Posted in
Uncategorized on maí 3rd, 2011 by addasigga —
Be the first to comment!
Í síðustu viku vorum við á Heiðarkoti með fagnaðarfund. Við sungum 2 lög fyrir gesti og leikskólabörn, það voru lögin „Krókódíll í lyftunni minni“ og „Waka waka Undraland. Auðvitað hefðum við viljað fá fleiri áhorfendur en þökkum þeim fyrir sem gátu kíkt á okkur
Það má segja að sumarið hafi komið með hvelli til okkar í gær og erum við búin að njóta veðurblíðunnar til hins ýtrasta. Í þessari viku eru foreldrasamtöl hjá okkur og eiga allir foreldrar að hafa fengið tíma sendan í tölvupósti. Framundan hjá okkur er undirbúningur fyrir vorsýninguna sem verður 20.maí á milli kl. 15 og 17. Vonumst við til að sjá sem flesta. Að sjálfsögðu verður kökubasar og börnin syngja nokkur lög. Vorhátíðinni okkar var frestað vegna veðurs og vonandi verður rjómablíða hjá okkur þann 27.maí þegar við áætlum að reyna aftur við þessa árlegu hátíð okkar.
Í svona góðu veðri væri gott að hafa léttari fatnað með börnunum, skó, buff, jafnvel stuttbuxur og svo er ágætt að hafa sólarvörn í töskunni þegar sólin fer að láta sjá sig enn meira.
Við bendum einnig á það að láta vita hvenær barnið ykkar fer í sumarfrí og hvenær það kemur aftur í haust. Leikskólinn fer í sumarfrí 1.júlí sem fyrr og opnum við aftur 11.ágúst. Ef einhverjar breytingar verða á vistun næsta vetur væri gott að vita það fyrir sumarfrí.
Kv. Freyja
Efnisorð:

Posted in
Uncategorized on apríl 5th, 2011 by addasigga —
Be the first to comment!
Vorið er handan við hornið hjá okkur og börnin hafa mikla þörf fyrir að fara út að renna, róla, moka og hjóla þessa dagana
Veikindin eru vonandi yfirstaðin að mestu leyti hjá okkur og allir hressir og kátir. Síðan síðast hefur ýmislegt breyst hjá okkur. Hún Regína Margrét flutti á Flúðir og kom til okkar á Heiðarkot, hún fór í Dóruhóp og unir sér vel hjá okkur. Elías Breki hætti hjá okkur í lok mars og erum við strax farin að sakna hans. Framundan er áframhaldandi hópastarf með páskaívafi og svo þurfum við að fara að hugsa fyrir fagnaðarfundinum okkar í lok mánaðarins.
Í gær varð Ragnheiður 3 ára og bauð okkur upp á ís tilefni dagsins. Takk fyrir okkur

Efnisorð:

Posted in
Uncategorized on mars 10th, 2011 by addasigga —
Be the first to comment!
Á mánudaginn varð Kamilla Rós 4 ára og bauð hún okkur upp á ís á sprengidaginn í tilefni afmælisins. Takk fyrir okkur og til hamingju

Það eru komnar myndir frá öskudeginum hér í leikskólanum inn á myndasvæðið okkar. Fleiri myndir má svo sjá á myndasíðu Móakots
Kv. Allir á Heiðarkoti
Efnisorð:

Posted in
Uncategorized on mars 4th, 2011 by addasigga —
Be the first to comment!
Þessa vikuna er búið að vera mikið um veikindi í leikskólanum, vantar næstum helminginn af krökkunum á Heiðarkoti í dag! Sendum öllum batniljós og vonandi koma allir sprækir eftir helgi.
Á miðvikudaginn bökuðum við bollur fyrir bolludaginn og var Sirrý yfirbakari og Dúna sérlegur aðstoðarmaður. Börnin fengu að fylgjast með öllu ferlinu, taka þátt í að blanda saman og setja á plöturnar. Svo fáum við að sjálfsögðu að borða gómsætu bollurnar á mánudaginn og hlökkum mikið til
Í dag hélt Dawid upp á 4 ára afmælið sitt og bauð okkur upp á ís í tilefni dagsins, en hann á afmæli á morgun, 5.mars. Þökkum kærlega fyrir okkur Dawid, njóttu afmælisdagins á morgun

Góða helgi allir
Kv. Allir á Heiðarkoti
p.s. settum inn fullt af myndum úr hópastarfi, frá kerlingadegi og karladegi og frá bollubakstrinum sl. miðvikudag. Endilega kíkið á það!
Efnisorð:
