Karladagurinn tókst með miklum ágætum!! Fullt af körlum komu í heimsókn til okkar og skemmtu allir sér rosalega vel! Allir karlar voru leystir út með gjöfum sem börnin eru búin að vera að föndra handa þeim undanfarnar vikur. Takk kærlega fyrir komuna karlar! Bráðlega hefst svo undirbúningur fyrir konudaginn og dag leikskólans og svo síðast [...]
Archive for the ‘Uncategorized’ category
Karladagurinn!!
Karladagur og Þorri
Í þessarri viku er mikið að gera í undirbúningi fyrir karladaginn sem verður á föstudaginn kemur. Verið er að útbúa rosalega flott boðskort, gjafir, myndir og skráningu. Síðasta vika var nýtt í að vinna með formin sem eru aðalþema janúarmánaðar. Bestu kveðjur Erla og Adda Sigga.
Skógarferð og þrettándaball!
Í gær fóru allir í leikskólanum í mikla skógarferð í Kvenfélagsskóginn okkar. Þar fengum við heita saft og smákökur við varðeldinn. Þetta var rosalega gaman þótt það væri pínulítið erfitt fyrir stutta fætur að fóta sig í snjónum. Þá fengum við bara far í vagninum. Í morgun var svo þrettándaball. Konurnar í leikskólanum voru búnar að [...]
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla!!!
Jæja núna eru allir að verða komnir í hús aftur eftir jólafríið. Allir eru sprækir og hressir og fer nýárið vel af stað. Í janúar verðum við að vinna með formin í öllum sínum myndum og fjölbreytileika. Í morgun bjuggum við til óróa til að hengja upp hjá okkur og komu þeir mjög vel út [...]
Jólaball
Í gær var jólaballið haldið. Það var mikið stuð og mikið dansað undir stórleik Undrabandsins. Jólasveinninn kom í heimsókn og gaf okkur fallegar gjafir úr pokanum sínum. Svo var dansað í kringum jólatréð sem börnin voru búin að skreyta svo fallega. Framundan eru rólegheit og dúllerí á Móakoti og lítið um eiginlegt hópastarf fram á [...]
Afmælisstrákur
Hann Sigurjón Ragnar varð tveggja ára í gær 11 desember í tilefni afmælisins var sungið fyrir hann og hann fékk afmæliskórónu. Til hamingju með daginn þinn Sigurjón Ragnar. Kveðja frá okkur öllum á Undralandi
Alltaf fjör á Móakoti
Í þessari viku hefur verið mikill kuldi þannig að það hefur verið mikil innivera. en samt sem áður gafst veður í gær og í morgunn til að fara út í sleðaferð. Það er svaka stuð að sitja á snjóþotu og láta draga sig svo höfum við verið heppinn að fá [...]
Jólatré, pakkar og söngur!
Það er búið að vera mikið að gera þessa vikuna! Við erum búin að renna mikið á snjósleðum, leika inni í könnunaleik, mála, undirbúa jólagjöfina til mömmu og pabba og margt fleira. Í dag fórum við út kl 09:20 og kveiktum á jólatrénu öll saman, dönsuðum í kringum jólatréð og sungum saman. Eftir það fórum [...]
Myndband af fagnaðarfundi :)
Það var fagnaðarfundur hjá okkur í morgunn. Við sungum þrjú lög bílalagið, köngulóalagið og dýragarðinn ( texta af lögunum má finna á vef sen heitir bornogtonlist.net ) Það stóðu sig allir mjög vel upprennandi söngvarar hér á Móakoti.
Fagnaðarfundur!
Kæru foreldrar/forráðamenn! Á fimmtudaginn 24. nóvember ætla allir á Móakoti að halda Fagnaðarfund. Foreldrar, afar og ömmur eru velkomin í heimsókn til okkar. Við byrjum kl. 09:40 í Hrunakrók. Vonumst til að sjá sem flesta!!! kv Erla, Adda Sigga og allir á Móakoti.