ágúst 30th, 2010
Það eru smá breytingar á dagskipulagin, þar sem við færum markvissa málörvun aðeins til við byrjum kl 10:45 í stað 10:00. Það er að komast mynd á dagsetningar og hvað við ætlum að gera í samstarfi leikskóla og grunnskóla og það fá allir skipulagið sent heim þegar það verður tilbúið.
Við ætlum að hafa sameiginlega söngstund með Heiðarkoti og Móakoti einhverja daga vikunnar þar sem Halldóra spilar á gítar og hver veit nema við finnum einhver fleiri hljóðfæri:)
Kv. Adda Sigga
ágúst 24th, 2010
Við erum búinn að vera mikið úti þessa fyrstu daga okkar og leika okkur. Hópurinn er að hristast saman og týnast inn eftir sumarfrí.
Í næstu viku ætlum við svo að fylgja dagskipulagi sem er komið upp á vegg:) Það verða allir krakkar á Skógarkoti Snillingar, bláir Snillingar fyrir hádegi og gulir eftir hádegi og þessar stundir verða á miðvikudögum, hópurinn sem ekki er í snillingastund fer þá í útikennslu á meðan. Á mánudögum verðum við í verkefnum í markvissri málörvun. Á þriðjudögum og fimmtudögum verðum við í stöðvavinnu.
Í síðustu viku fórum við í rifsberjaferðina og það var týnt mikið af berjum og núna erum við búinn að gera sultu sem kemur heim í dag:) Það eru búinn að vera tvö afmæli hjá okkur hún Valdís Una er orðin 5 ára og Anna María líka. Ég ætla að reyna að setja myndir inn af því sem við erum búinn að vera að gera og af afmælisstelpunum okkar en er í smá vandræðum með það núna:)
Kv. Adda Sigga
júní 9th, 2010
Í gær fórum við á Miðfell og gengum yfir það og heimsóttum Öddu Siggu þar grilluðum við og lékum okkur í garðinum, sáum nýfædda ketlinga. Svo gengu hraustmenni Skógarkots til baka vestan við fjallið og komu sæl og glöð og eitthvað örlaði á þreytu í hópnum. Skemmtilegur dagur með frábærum börnum.

júní 1st, 2010
Í gær útskrifuðum við Snillinga úr leikskólanum. Í tilefni dagsins fórum við um sveitina okkar og komum að öllum húsum Snillinga. Við heimsóttum Jóa á slökkvistöðina og fengum far með slökkvibílunum. Fórum svo í sund og enduðum í grilli á Útlaganum. Skemmtilegur dagur með skemmtilegum börnum.

maí 14th, 2010
Í þessari viku var vorskóli hjá Snillingum. Við byrjuðum mánudaginn á skiptiheimsóknum, 1.bekkur koma að leika í leikskólanum og Snillngar fóru í Flúðaskóla og bjuggu til dúkkulísu sjálfsmynd. Á þriðjudaginn fóru Snillingar í Flúðaskóla og fóru í tíma, frímínútur og aftur í tíma og þá stöðvavinnu, 
íslensku, stærðfræði, lego, og krók (þar var hægt að lesa bækur og spila). Á miðvikudaginn var svo komið að skógardegi í vorskólanum, við fórum með 1.bekk út í skóg þar fórum við í keilu, skutlukast, yatzy, tálguð voru prik til að grilla sykurpúðana á og líka búnir til óróar. Eftir að hafa leikið í dágóða stund voru grillaðar pylsur og sykurpúðar. Góður endir á frábærum vorskóla.

maí 11th, 2010
Vorskólinn hjá Snillingum er langt kominn og eigum við einn dag eftir sem er skógardagurinn þá leikum við í skóginum með 1.bekk grillum pylsur og sykurpúða.
Vitringarnir fóru í gönguferð í dag og gerðu óróa. Svo var leikið og skemmt sér í sólarblíðunni.
Kveðja Halldóra, Móa og Jónína.
apríl 26th, 2010
Í þessari viku verður stöðvavinnan skipt í þrjá hluta, rannsóknarvinnu í skóginum, myndlist utandyra, tölustafir og reikningshugtökin + og =. Svo verður breyting á í maí en þá verða þrjár útistöðvar og þær verða. Rannsóknarvinna í skóginum þar er fylgst með lífríki skógarins hvernig það breytinst með vorinu og fram á sumar. Myndlist utandyra þar fara börnin í vettvangsferðir og hafa með sér myndlistavörur, jarðleir og skapa verkin á góðum og notalegum stöðum í náttúrunni. Bókstafa- og tölustafavinna fer fram í vettvangsferðum og nýtum náttúruna til kennslu.
Hlökkum til spennandi verkefna
Halldór, Jónína og Móa.
apríl 19th, 2010
Í þessari vikur verður nóg að gera að vanda hjá okkur á Skógarkoti. Í dag mánudag unnum við í verkefnaheftum, fórum svo úr að leika. eftir hádegi var svo farið á gamla tjaldsvæðið að leika sér í trjánum. Á morgun verður svo stöðvavinna. Á miðvikudaginn verður vorhátíð hjá okkur með húllumhæ og sprelli. Á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta verður leikskólinn lokaður, og á föstudaginn verður verkefnavinna og frjáls leikur hjá okkur.
apríl 14th, 2010
í dag er litabókadagur og komu börnin með margar skemmtilegar litabækur. Í stöðvavinnu í dag var boðið upp á heimiliskrók, bílaleik, lestarleik, breitast í geimverur og mála hnetti og lita í litabækurnar sínar. Börnunum fannst þetta spennandi tilbreiting. Alina gaf okkur ís í tilefni afmælisdagsins hennar í gær. Takk fyrir okkur Alina.
Kveðja Halldóra, Móa og Jónína.
apríl 7th, 2010
Í dag hélt hún Eyrún upp á afmælið sitt og gaf okkur ís.
í stöðvavinnu voru hnettirnir málaðir, geimkennarar og geimkennslustofur byggðar í einingakubbum, í leirnum voru mótaðar geimverur og geimskip og í skóginum voru mótuð myndverk með náttúruefnum.
Vitringar fóru svo í göngutúr upp á Högnastaðarás og sá margt forvitnilegt á leiðinni.
Snillingar fóru í art og lærðu hvað það væri að ónáða einhvern eða trufla svo æfðu þau, hvað hægt væri að gera til þess að ónáða ekki. Eftir art héldum við áfram með sjálfsmynd í fullri stærð. Skemmtilegur og fróðlegur tími þó að flæstir væru aðframkomnir af þreytu:)
Kveðja Halldóra, Jónína, Móa og Steinunn