Breytingar og stöðvavinna
janúar 13th, 2010 at 10:18Í þessari viku voru gerðar breytingar hér á Skógarkoti. Hún Elín er komin í veikindafrí og ætlar svo að fjölga hjá sér í apríl, við óskum henni velfarnaðar í nýjum verkefnum og söknum hennar sárann. Maður kemur í manns stað og við fengum hana Jónínu til okkar og tvær stelpur af Heiðarkoti þær Guðrúnu Huldu og Matthildi Sif og við bjóðum þær velkomnar til okkar.
Í stöðvavinnu núna í janúar og febrúar kannski eitthvað lengur verðum við að læra allt um himingeiminn, lærdómurinn fer fram í gegnum leik í einingakubbum, jarðleir og vísindum. Við erum líka að vinna með tölustafi, bókstafi, rím og samstöfum.
Kveðja frá Skógarkoti Halldóra, Móa og Jónína