15.febrúar
febrúar 15th, 2010 at 14:36Í morgun fengum við okkur rjómabollu og sungum bolludagslag, á morgun sprengjum við okkur út af saltkjöti og baunasúpu, svo mætum við skrautleg og skrítin á miðvikudaginn/Öskudag.
Af stöðvavinnunni er þetta að frétta: Við höfum verið að fræðast um himingeiminn, stjörnurnar, tunglið, sólina og hnettina. Öll okkar vinna hefur á einhvern hátt tengst himingeimnum. Í einingakubbum hafa hinar ýmsu gerðir af geimskutlum, geimskipum verið gerðar. Sólkerfið var líka byggt á einstaklega skemmtilegan og vel útfærðan hátt. Í stafavinnu var tunglið skoðað og stafirnir klipptir út og límdir á blaðið. Í vísindum var aðdráttaraflið kannað og tilraunir gerðar með segulkraft. Í jarðleirnum var verið að æfa sig að vinna með leirinn og mótaðar margar skemmtilegar geimverur og geimskip.
Núna erum við að vinna eitt skilduverkefni og það er að búa til geimskip/geimskutlu/geimveru úr jarðleir sem við ætlum svo að brenna og mála. Í myndlist er verið að búa til sólkerfið í þrívídd. Stafa/töluvinna fer eingöngu fram úti í skógi og þar fræðumst við líka um jörðina okkar. Í einingakubbum er alltaf byggt eitthvað sem tengist himinheimnum. Það er mjög gaman að vinna þessi verkefni með börnunum þar sem þau eru full af áhuga og soga að sér allan fróðleik sem við leggjum fyrir þau.
Kveðja Halldóra, Móa og Jónína