14. Maí
maí 14th, 2010 at 15:04Í þessari viku var vorskóli hjá Snillingum. Við byrjuðum mánudaginn á skiptiheimsóknum, 1.bekkur koma að leika í leikskólanum og Snillngar fóru í Flúðaskóla og bjuggu til dúkkulísu sjálfsmynd. Á þriðjudaginn fóru Snillingar í Flúðaskóla og fóru í tíma, frímínútur og aftur í tíma og þá stöðvavinnu, 
íslensku, stærðfræði, lego, og krók (þar var hægt að lesa bækur og spila). Á miðvikudaginn var svo komið að skógardegi í vorskólanum, við fórum með 1.bekk út í skóg þar fórum við í keilu, skutlukast, yatzy, tálguð voru prik til að grilla sykurpúðana á og líka búnir til óróar. Eftir að hafa leikið í dágóða stund voru grillaðar pylsur og sykurpúðar. Góður endir á frábærum vorskóla.
