Dagur leikskólans, myndlistarsýning og afmæli
Mánudagur, febrúar 6th, 2012Í dag er dagur leikskólans og höldum við hann hátíðlegan með því að opna myndlistarsýningu í Samkaup Strax. Við fórum í morgun, öll saman, opnuðum sýninguna formlega og sungum þrjú lög. Agnes bauð okkur svo upp á safa og saltstangir
Hvetjum alla til að kíkja í búðina og skoða flottu listaverkin sem við gerðum.
Vikan fer að mestu í undirbúning fyrir kerlingadag ásamt hefðbundnu hópastarfi.
Á fimmtudaginn í síðustu viku átti Anna Katrín afmæli og varð 6 ára. Hér er mynd af afmælisbarninu :

Endilega kíkið á myndirnar í myndaalbúminu, komnar nýjar myndir í janúar og febrúar albúmin.
Kv. Allir á Skógarkoti



