Vikan
Miðvikudagur, október 5th, 2011Hæ allir
Þessi vika fer að mestu í undirbúning fyrir ömmu- og afadaginn sem er á þriðjudaginn í næstu viku. Þá mega börnin bjóða ömmum og öfum að koma í heimsókn til okkar í leikskólann. Börnin fá boðskort með sér heim á morgun sem börnin mega afhenda ömmu og afa
Í gær fóru Snillingar í sína fyrstu heimsókn út í Flúðaskóla. Þau fóru í stöðvavinnu með 1.bekk og var þeim skipt á 4 stöðvar = verkefnahefti, bókakrókur, lego og leir, þar sem þau áttu að leira nafnið sitt. Öllum gekk mjög vel að aðlaga sig þessu formi og taka þátt og enduðum við heimsóknina á því að fara í frímínútur með skólakrökkunum. Næst kemur 1.bekkur í heimsókn til okkar og munum við fara í myndlist og tónlist þann 19.okt kl: 8:40…gott væri ef börnin sem eru með vistun frá kl. 9 kæmu um 8:30 þann daginn.
Í morgun var svo brunaæfing hjá okkur. Hún gekk ljómandi vel, við rýmdum leikskólann á rétt rúmlega einni mínútu. Sumir urðu skelkaðir en öðrum fannst mikið sport að fá að hlaupa út á sokkunum
Á morgun er Snillingastund og Vitringar fara í gönguferð með Elínu og Jónínu.
Á föstudaginn er leikskólinn svo lokaður vegna haustþings 8.deildar á Selfossi.
Kv. Freyja, Jónína, Dúna og Elín.



