Skógarkot

|

Just another Blogg.undraland.is Blogs weblog

Archive for the ‘Uncategorized’ Category

Nóg að gera í vikunni :)

Miðvikudagur, ágúst 31st, 2011

Hjá okkur er búið að vera brjálað að gera það sem af er vikunni og verður svipað áfram :) ART þjálfun fór af stað hjá 2007 börnum í gærmorgun og eru þau nú búin með 2 tíma af 3 í 1.viku félagsfærni. Við erum að taka fyrir færnina að hlusta og gengur ágætlega að æfa sig í því :)

Hópastarfið er komið á fullt og eru komin nöfn á hópana: Jónína og Dúna eru með Hestahóp og í honum eru Anna Katrín, Ásdís Mjöll, Gabriel, Anastasia, Ingunn Lilja, Patryk Zenon og Dawid. Freyja er með Tröllahóp og í honum eru: Jón Valgeir, Magni Fannar, Rebekka, Ásdís Rún, Kamilla Rós, Emil og Þorsteinn Ingi. Í þessari viku er Hestahópur í myndlist og Tröllahópur í tónlist/hreyfingu.

Á morgun byrjum við á Snillingastundum hjá 2006 börnum og þau fá með sér skipulag skólaheimsókna fram að áramótum heim í dag, miðvikudag.

Þessa dagana rignir mikið á okkur og því er mikilvægt að börnin séu með stígvélin, pollagalla, húfu, vettlinga og nóg af aukafötum í töskunni, því okkur finnst gaman að sulla í pollunum :)

Kv. Freyja

Berjatínsla og sultugerð

Fimmtudagur, ágúst 25th, 2011

Í gær, 24.ágúst, gengum við út að Seli og tíndum fullt af rifsberjum og nokkur sólber. Okkur gekk ágætlega að ganga alla þessa leið og fengum hressingu í golfskálanum um leið og við komum. Ásta Guðný bauð okkur upp á melónur, appelsínur og djús áður en við héldum út að tína ber. Við vorum svo sótt og keyrð aftur í leikskólann. Við tíndum 4 kíló af berjum og í morgun sultuðum við svo úr berjunum, allir fengu að fylgjast með og taka þátt í ferlinu.

Myndir af berjatínsluferðinni, sultugerðinni og lífinu í leikskólanum má finna á myndasíðunni okkar :) Endilega kíkiði.

Við erum aðeins farin að vinna með sauðkindina og réttirnar og virðast börnin vera mjög spennt fyrir þeirri vinnu. Dembum okkur í þetta af fullum krafti eftir helgi.

Kv. Freyja

Berjatínsluferð

Þriðjudagur, ágúst 23rd, 2011

Á morgun er stefnan tekin á berjatínsluferð á golfvöllinn á Seli. Við ætlum að tína rifsber og sólber og búa svo til sultu úr þeim og koma með heim :) Við ætlum að leggja af stað kl. 9:15 frá leikskólanum þannig að gott væri að allir mættu tímanlega í fyrramálið :

Kv. Freyja

Fjörið byrjað :)

Laugardagur, ágúst 13th, 2011

Jæja, þá er sumarfríið búið og börnin koma hægt að sígandi inn til okkar. Enn vantar 5 börn á Skógarkot en vonandi skila þau sér til okkar eftir helgi. í vetur verða 14 börn á Skógarkoti, fædd 2006 og 2007. Freyja, Jónína og Dúna verða þeim til halds og trausts og Elín mun koma reglulega til okkar líka. ART fer af stað líklega í lok ágúst og svo ætlum við að reyna að þróa okkur enn frekar í útikennslunni og nýta efniviðinn í náttúrunni.

Spennandi vetur framundan :)

Kv. Freyja

Afmæli

Fimmtudagur, júní 30th, 2011

Hún Guðrún Lilja er 6 ára í dag 30. júní.

Við óskum henni til hamingju með daginn.

Í tilefni dagsins bauð hún öllum leikskólanum upp á ís:)

Takk fyrir okkur

Kveðja allir á Undralandi

Gaman úti

Þriðjudagur, júní 7th, 2011

 Í morgunn fórum við í göngu með Móakoti þar sem við hjálpuðum yngri börnunum . Við gengum út á íþróttavöll þar sem við lékum okkur. Eftir hádegi lékum við okkur úti á leikvelli og einhverjir voru í listsköpun:) myndir inn á möppu sem heitir Miðfellsganga.

Miðfellsganga

Mánudagur, júní 6th, 2011

 

Í morgunn fórum við  í okkar árlegu göngu á Miðfell. Við lögðum í hann um níu leytið og vorum kominn upp á topp u.þ.b. 10:15 sem sagt fukum upp :) Við gengum svo yfir fjallið rendum okkur niður berjabrekkuna eins og hún er kölluð, gegnum skóginn og svo heim til mín þar sem við lékum okkur í búinum, trambólíninu, skoðuðum kettlinga og  grilluðum pylsur. Eftir mat þá fóru Skógarkotskrakkar, Steinunn, Freyja og ég gangandi til baka í leikskólann slóð fiðrildana, allir aðrir fóru á bílum. Við fengum vindinn í fangið á leiðinni til baka þannig að við gengum að Markarmýrarklett ásamt henni Töru hundinum mínum. Þar sótti Halladóra flotta göngugarpa sem stóðu sig frábærlega þrátt fyrir kulda, rok og ösku.

Kv. Adda Sigga

Útskrift

Miðvikudagur, júní 1st, 2011

Í gær fórum við í útskriftarferðina okkar. Við komum við heima hjá öllum á deildinni og stoppuðum í Haukholtum, Seli og Langholtskoti. Svo var farið í sund og svo endað á Útlaganum. Þetta var frábær dagur. við Kvöddum nokkra krakka sem eru hætt Óðinn Freyr, Matthildur Sif, Guðrún Hulda, Mikael Grétar sem er fluttur á Selfoss og Bjarki Már sem er fluttur á Laugarvatn.

Hann Óðinn Freyr Kvaddi okkur með því að halda upp á afmælið sitt sem er 15.júní og bauð okkur upp á ís :)

Kv. Adda Sigga

Alltaf stuð á Skógarkoti

Miðvikudagur, maí 11th, 2011

Það er búið að vera mikið um að vera síðustu daga hjá okkur. Ég vil byrja á því að segja frá því að hann Bjarki Már er farinn frá okkur hann flutti á Laugarvatn þannig að hann fór ekki langt, hans er sárt saknað. Hún Sirui byrjaði hjá okkur í síðustu viku en hún er frá Kína og við bjóðum hana velkomna. Við höfum verið mikið í útikennslu og brallað margt eins og hveraferðin okkar, Snillingaslútt, skógarferð, veiðiferð og nú síðast Vorskólinn sem hefur aðins riðlast vegna veikinda en við bætum fimmtudeginum við hjá okkur í vorskóla og hann byrja kl:8:40 á morgunn.

Kv. Adda Sigga, Jónína og Steinunn

Afmælisstrákur

Mánudagur, apríl 18th, 2011

Hann Gísli Gunnar átti afmæli 16. apríl til hamingju með daginn :)

Annars styttist í páskafrí og við erum búinn að vera búa til allskyns páskaskraut sem allir fá að taka með sér heim fyrir páska. Svo er vordagurinn okkar á miðvikudaginn þá gerum við margt skemmtilegt vonandi úti andlitsmálun, leikir, myndlist o.f.l Svo fáum við grillaða hamborgara í matinn skemmtilegur dagur framundan:)

ps. Fullt af nýjum myndum komnar í albúmið okkar.