Skógarkot

|

Just another Blogg.undraland.is Blogs weblog

Páskar

mars 31st, 2010

Gleðilega Páska

18. mars

mars 18th, 2010

Í dag vorum við á Skógarkoti með fagnaðarfund. Það var mjög ánæjulegt að sjá hversu margir koma að horfa á börnin. Við lékum Guttavísur og sungum þær með tilbrygðum, við sungum líka eitt af okkar uppáhalds lögum sem er lítil ýsa. Allir voru lukkulegir með velheppnaðan fagnaðarfund og viljum við þakka öllum sem komu og hlýddu á.

kv Halldóra, Móa og Jónína

11. Mars

mars 11th, 2010

Í dag voru gerðar breitingar á stöðvum. Börnin fengu að velja hvað þau vildu hafa í stöðvavinnu og þau völdu perlur, hlutverkaleik (mömmó) og íþróttadót. Hnettirnir okkar eru alveg að verða tilbúnir það á bara eftir að mála þá og hengja þá upp hjá okkur þá líkur þeirri vinnu í bili og eitthvað nýtt tekur við. 

Á morgun er skólaheimsókn hjá Snillingum, þeir eru að fara í heimilisfræði og í verkefni með 1.bekk.

Kveðja Halldóra, Móa og Jónína

4. Mars

mars 4th, 2010

Þessi vika hefur verið fjörug og skemmtileg að vanda. Það er búið að nota snjófölina mjög vel bæði til snjókarlagerðar og sleðaferðar. 1.bekkur kom í heimsókn til okkar á þriðjudaginn, á miðvikudaginn fórum við í stöðvavinnu og í dag fimmtudag fóru Snillingar í myndmennt með 1.bekk og Vitringar fóru í stöðvavinnu. Halldóra og Gísli voru með myndasýningu frá skíðaferðinni í dag sem vakti mikla lukku. Á morgun kemur presturinn svo til okkar.

Góða helgi Halldóra, Móa og Jónína

15.febrúar

febrúar 15th, 2010

Í morgun fengum við okkur rjómabollu og sungum bolludagslag, á morgun sprengjum við okkur út af saltkjöti og baunasúpu, svo mætum við skrautleg og skrítin á miðvikudaginn/Öskudag.

Af stöðvavinnunni er þetta að frétta: Við höfum verið að fræðast um himingeiminn, stjörnurnar, tunglið, sólina og hnettina. Öll okkar vinna hefur á einhvern hátt tengst himingeimnum. Í einingakubbum hafa hinar ýmsu gerðir af geimskutlum, geimskipum verið gerðar. Sólkerfið var líka byggt á einstaklega skemmtilegan og vel útfærðan hátt. Í stafavinnu var tunglið skoðað og stafirnir klipptir út og límdir á blaðið. Í vísindum var aðdráttaraflið kannað og tilraunir gerðar með segulkraft. Í jarðleirnum var verið að æfa sig að vinna með leirinn og mótaðar margar skemmtilegar geimverur og geimskip.

Núna erum við að vinna eitt skilduverkefni og það er að búa til geimskip/geimskutlu/geimveru úr jarðleir sem við ætlum svo að brenna og mála. Í myndlist er verið að búa til sólkerfið í þrívídd. Stafa/töluvinna fer eingöngu fram úti í skógi og þar fræðumst við líka um jörðina okkar. Í einingakubbum er alltaf byggt eitthvað sem tengist himinheimnum. Það er mjög gaman að vinna þessi verkefni með börnunum þar sem þau eru full af áhuga og soga að sér allan fróðleik sem við leggjum fyrir þau.

Kveðja Halldóra, Móa og Jónína

9.febrúar

febrúar 9th, 2010

Í dag voru bolluvendirnir búnir til. Vitringar fóru svo út og Snillingar tóku á móti 1.bekk í litatónaverkefni sem var mjög skemmtilegt.

 

 

 

 

Eftir hádegi fórum við svo og suðum okkur egg í þvottahvernum og voru eggin sérstaklega ljúffeng á bragðið.

27. Janúar

janúar 27th, 2010

Stöðvavinna heldur áfram hjá okkur þrátt fyrir mikil veikindi. Í dag var himingeimurinn var búinn til í einingakubbum, í vísindum var sólkerfið skapað og Tunglið rannsakað í stafavinnu.

Snillingarnir fóru í art og æfðu sig að gefa vinaknús og kinnaknús og tala fallega við vin sinn „mér þykir vænt um þig“. Eftir art var byrjað á hann-henni- Umpalumpu, það var reglulega skemmtileg vinna og munum við halda áfram með Umpalumpu næstu vikurnar.

Vitringar fóru í gönguferð niður að Límtré, fundu þar fótbolta og brugðu á leik. Þau ræddu um vináttu og æfðu sig í því að gefa vinaknús.

Kveðja Halldóra og Móa

Karladagur

janúar 22nd, 2010

Í gær var okkar árlegi karladagur. Það er ánægjulegt að segja frá því að öll börn (sem voru mætt) á Skógarkoti fengu heimsókn. Það voru pabbar, afar og frændur sem komu og léku sér með börnunum. Takk fyrir skemmtilegan dag allir sem einn.

kv Halldóra, Móa og Jónína

20. janúar

janúar 20th, 2010

Í dag var fámennt á Skógarkoti, við sendum risastórt ljós til allra sem eru veikir heima. Í söðvavinnu var himingeimurinn leiraður, úr einingakubbunum var byggt geimskip og í verkefnavinnu var bókin himinheimurinn skoðaður og myndir teiknaðar af tunglinu, Mars, Satúrnusi og Júpiter.

Vitringar fóru í útikennslu og veittu vatni poll úr polli hefðu helst viljað vera þar fram á kvöld.

 

Þið getið séð fleiri myndir á myndasíðu.

Snillingar (sem voru tveir í dag) spiluðu Núma og byggðu svo kastala, sem var út í geim, úr einingakubbunum.

Á morgun er svo hinn árlegi Karladagur.

Breytingar og stöðvavinna

janúar 13th, 2010

Í þessari viku voru gerðar breytingar hér á Skógarkoti. Hún Elín er komin í veikindafrí og ætlar svo að fjölga hjá sér í apríl, við óskum henni velfarnaðar í nýjum verkefnum og söknum hennar sárann. Maður kemur í manns stað og við fengum hana Jónínu til okkar og tvær stelpur af Heiðarkoti þær Guðrúnu Huldu og Matthildi Sif og við bjóðum þær velkomnar til okkar.

Í stöðvavinnu núna í janúar og febrúar kannski eitthvað lengur verðum við að læra allt um himingeiminn, lærdómurinn fer fram í gegnum leik í einingakubbum, jarðleir og vísindum. Við erum líka að vinna með tölustafi, bókstafi, rím og samstöfum.

Kveðja frá Skógarkoti Halldóra, Móa og Jónína