Skógarkot

|

Just another Blogg.undraland.is Blogs weblog

Gaman úti

júní 7th, 2011

 Í morgunn fórum við í göngu með Móakoti þar sem við hjálpuðum yngri börnunum . Við gengum út á íþróttavöll þar sem við lékum okkur. Eftir hádegi lékum við okkur úti á leikvelli og einhverjir voru í listsköpun:) myndir inn á möppu sem heitir Miðfellsganga.

Miðfellsganga

júní 6th, 2011

 

Í morgunn fórum við  í okkar árlegu göngu á Miðfell. Við lögðum í hann um níu leytið og vorum kominn upp á topp u.þ.b. 10:15 sem sagt fukum upp :) Við gengum svo yfir fjallið rendum okkur niður berjabrekkuna eins og hún er kölluð, gegnum skóginn og svo heim til mín þar sem við lékum okkur í búinum, trambólíninu, skoðuðum kettlinga og  grilluðum pylsur. Eftir mat þá fóru Skógarkotskrakkar, Steinunn, Freyja og ég gangandi til baka í leikskólann slóð fiðrildana, allir aðrir fóru á bílum. Við fengum vindinn í fangið á leiðinni til baka þannig að við gengum að Markarmýrarklett ásamt henni Töru hundinum mínum. Þar sótti Halladóra flotta göngugarpa sem stóðu sig frábærlega þrátt fyrir kulda, rok og ösku.

Kv. Adda Sigga

Útskrift

júní 1st, 2011

Í gær fórum við í útskriftarferðina okkar. Við komum við heima hjá öllum á deildinni og stoppuðum í Haukholtum, Seli og Langholtskoti. Svo var farið í sund og svo endað á Útlaganum. Þetta var frábær dagur. við Kvöddum nokkra krakka sem eru hætt Óðinn Freyr, Matthildur Sif, Guðrún Hulda, Mikael Grétar sem er fluttur á Selfoss og Bjarki Már sem er fluttur á Laugarvatn.

Hann Óðinn Freyr Kvaddi okkur með því að halda upp á afmælið sitt sem er 15.júní og bauð okkur upp á ís :)

Kv. Adda Sigga

Alltaf stuð á Skógarkoti

maí 11th, 2011

Það er búið að vera mikið um að vera síðustu daga hjá okkur. Ég vil byrja á því að segja frá því að hann Bjarki Már er farinn frá okkur hann flutti á Laugarvatn þannig að hann fór ekki langt, hans er sárt saknað. Hún Sirui byrjaði hjá okkur í síðustu viku en hún er frá Kína og við bjóðum hana velkomna. Við höfum verið mikið í útikennslu og brallað margt eins og hveraferðin okkar, Snillingaslútt, skógarferð, veiðiferð og nú síðast Vorskólinn sem hefur aðins riðlast vegna veikinda en við bætum fimmtudeginum við hjá okkur í vorskóla og hann byrja kl:8:40 á morgunn.

Kv. Adda Sigga, Jónína og Steinunn

Afmælisstrákur

apríl 18th, 2011

Hann Gísli Gunnar átti afmæli 16. apríl til hamingju með daginn :)

Annars styttist í páskafrí og við erum búinn að vera búa til allskyns páskaskraut sem allir fá að taka með sér heim fyrir páska. Svo er vordagurinn okkar á miðvikudaginn þá gerum við margt skemmtilegt vonandi úti andlitsmálun, leikir, myndlist o.f.l Svo fáum við grillaða hamborgara í matinn skemmtilegur dagur framundan:)

ps. Fullt af nýjum myndum komnar í albúmið okkar.

Afmælisstelpa

apríl 11th, 2011

 

Hún Eyrún átti afmæli þann 4.apríl og bauð hún okkur upp á ís í tilefni dagsins. Takk fyrir okkur og  til hamingju með afmælið Eyrún.

Við erum búinn að vera vinna í Alpafrílunni og Skrumudallinum og er þeirri vinnu að ljúka. Við erum líka að gera gifsgrímur og það eiga nokkrir krakkar eftir að gera sínar grímur. Einnig erum við byrjuð að gera páskaskraut.

Kv. Adda Sigga

Sveitaferð

mars 28th, 2011

Við fórum í sveitaferð morgunn í Miðfell til Öddu Siggu þar gáfum við hestum, kindum, hænum, kisum hittum hvolpana og fórum svo í heimsókn til hennar Arnfríðar og hittum kálfa sem við fengum að gefa pela og sáum róbót sem mjólkar kýrnar:)

Það er mikið um að vera þessa vikuna, skólaheimsókn á morgunn og á miðvikudaginn svo er fagnaðarfundur á fimmtudaginn.

Skólaheimsókn

mars 22nd, 2011

í morgunn vorum við í hópunum okkar að gera sjálfsmyndir, síðan kom fyrsti bekkur í heimsókn til okkar í morgunn og allir fengu að velja sér stöðvar til að leika á. Við fórum svo í skóginn eftir hádegi þar sem við fórum í dýrafjölskylduleik og fallin spýta. Loksins er farið að fjölga hjá okkur á deildinni en það eru búinn að vera mikil veikindi í leikskólanum. Við ætlum að halda áfram með Alpafríluna okkar og Skrumudallinn á morgunn og það verður spennandi að sjá útkomuna.

Hann Patrik átti afmæli 14. mars hann bauð okkur upp á ís í tilefni dagsins til hamingju með afmælið Patrik og takk fyir okkur.

Kv. Adda Sigga, Steinunn og Jónína

Öskudagur

mars 9th, 2011

Það er búið að vera mikið fjör hjá okkur í morgunn allir mættu í búningum. Við dönsuðum slóum köttinn úr tunnunni, lékum okkur með blöðrur. Foreldrafélagið lék fyrir okkur leikritið þrír litlir grísir og svo fengum við pizzur frá pizzasel sem runnu ljúflega niður ásamt svala. Það fengu svo allir nammipoka með sér heim. Flottur dagur í góðu en köldu veðri:)

Góðir gestir

febrúar 11th, 2011

Það er búið að leika mikið í snjónum þessa vikuna við erum búinn að búa til snjóhús út á félagsheimilsplani, snjókarla, engla og fara í snjókast. Fyrsti bekkur kom í heimsókn til okkar á miðvikudaginn og við gerðum listaverk saman. Við skiptum okkur í þrjá hópa og máluðum með bláum, rauðum og grænum í nokkrum litatónum síðan gerðum við útlínur með svörtum. Það léku svo allir saman þar til fyrsti bekkur fór í skólann aftur.

Það hefur safnast mikið upp af óskilafötum sérstaklega vettlingum endilega kíkið á þetta:)

Kv. Adda Sigga, Jónína og Steinunn