apríl 11th, 2011

Hún Eyrún átti afmæli þann 4.apríl og bauð hún okkur upp á ís í tilefni dagsins. Takk fyrir okkur og til hamingju með afmælið Eyrún.
Við erum búinn að vera vinna í Alpafrílunni og Skrumudallinum og er þeirri vinnu að ljúka. Við erum líka að gera gifsgrímur og það eiga nokkrir krakkar eftir að gera sínar grímur. Einnig erum við byrjuð að gera páskaskraut.
Kv. Adda Sigga
mars 28th, 2011
Við fórum í sveitaferð morgunn í Miðfell til Öddu Siggu þar gáfum við hestum, kindum, hænum, kisum hittum hvolpana og fórum svo í heimsókn til hennar Arnfríðar og hittum kálfa sem við fengum að gefa pela og sáum róbót sem mjólkar kýrnar:)
Það er mikið um að vera þessa vikuna, skólaheimsókn á morgunn og á miðvikudaginn svo er fagnaðarfundur á fimmtudaginn. 
Posted by skogarkot,
in Uncategorized
2 Comments »
mars 22nd, 2011
í morgunn vorum við í hópunum okkar að gera sjálfsmyndir, síðan kom fyrsti bekkur í heimsókn til okkar í morgunn og allir fengu að velja sér stöðvar til að leika á. Við fórum svo í skóginn eftir hádegi þar sem við fórum í dýrafjölskylduleik og fallin spýta. Loksins er farið að fjölga hjá okkur á deildinni en það eru búinn að vera mikil veikindi í leikskólanum. Við ætlum að halda áfram með Alpafríluna okkar og Skrumudallinn á morgunn og það verður spennandi að sjá útkomuna.
Hann Patrik átti afmæli 14. mars hann bauð okkur upp á ís í tilefni dagsins til hamingju með afmælið Patrik og takk fyir okkur.
Kv. Adda Sigga, Steinunn og Jónína
Posted by skogarkot,
in Uncategorized
2 Comments »
mars 9th, 2011
Það er búið að vera mikið fjör hjá okkur í morgunn allir mættu í búningum. Við dönsuðum slóum köttinn úr tunnunni, lékum okkur með blöðrur. Foreldrafélagið lék fyrir okkur leikritið þrír litlir grísir og svo fengum við pizzur frá pizzasel sem runnu ljúflega niður ásamt svala. Það fengu svo allir nammipoka með sér heim. Flottur dagur í góðu en köldu veðri:)
Posted by skogarkot,
in Uncategorized
1 Comment »
febrúar 11th, 2011
Það er búið að leika mikið í snjónum þessa vikuna við erum búinn að búa til snjóhús út á félagsheimilsplani, snjókarla, engla og fara í snjókast. Fyrsti bekkur kom í heimsókn til okkar á miðvikudaginn og við gerðum listaverk saman. Við skiptum okkur í þrjá hópa og máluðum með bláum, rauðum og grænum í nokkrum litatónum síðan gerðum við útlínur með svörtum. Það léku svo allir saman þar til fyrsti bekkur fór í skólann aftur.
Það hefur safnast mikið upp af óskilafötum sérstaklega vettlingum endilega kíkið á þetta:)
Kv. Adda Sigga, Jónína og Steinunn
Posted by skogarkot,
in Uncategorized
1 Comment »
febrúar 7th, 2011
Loksins koma fréttir af okkur. Hópastarfið hjá okkur fer vel af stað hóparnir hafa fengið nöfn og Jónínu hópur heitir 5 litlar núðlur, Steinunar hópur heitir 5 Stjörnur og Öddu hópur Dýrahópur. Við skiptum vikunum á milli okkar og erum ýmist í tónlist, myndlist, einingakubbum eða útikennslu og erum á hverri stöð í eina viku.
Snillingastundirnar okkar eru óbreyttar á miðvikudögum. Við byrjum hverja Snillingastund á Art í síðustu viku vorum við að læra að fara eftir fyrirmælum og þá þurftum við að fara í smá upprifjun á því hvernig við hlustum á aðra. Við erum búinn að vera gera mörg skemmtileg verkefni og erum langt komin með að klára öll Núma verkefnin. Við gerðum fingrabrúður um daginn sem öllum fannst mjög gaman þar unnu tveir og tveir saman. Í Snillingastund voru orðin Skrumudallur f.h bláir snillingar og Alpafríla e.h. Gulir snillingar lagt fyrir krakkana hvað er það? Og hvernig lítur það út? Það komu margar útgáfur af því hvernig þetta lítur út og hvað þetta gerir og nú er næsta verkefni hjá okkur að búa þetta til þannig að það er spennandi verkefni framundan.
Krakkarnir í fyrsta bekk eru búinn að koma í eina heimsókn til okkar og við fórum öll saman í söngstund og út að leika. Við fórum svo í heimsókn til þeirra í tölvutíma og einnig í handavinnu þar sem við saumuðum húfur.
Það er búið að vera mjög vinsælt að gera skuggamyndir og gerðum við einmitt þannig myndir til að setja upp á myndlistarsýningunni okkar í búðinni. Sýningin heitir vinátta og við erum búinn að vera spjalla hvað vinátta sé. Eftir þessar umræður fórum við af stað í skuggaverkefnið einnig gerðum við vináttubönd og teiknuðum hendurnar á hvort öðru og klipptum út. Þessi verkefni reyndu mikið á traust og vináttu.
p.s komið fullt af nýjum myndum
Kv. Adda Sigga
Posted by skogarkot,
in Uncategorized
1 Comment »
nóvember 5th, 2010
Við tókum verkefni 4. í Núma í Snillingastund á miðvikudag við lásum um hann Núma Þar sem hann missti fjórða höfuðið sitt þegar hann hljóp út á götu og í framhaldi af sögunni fórum við í vettvangsferð að læra umferðarreglur og skoða umferðarmerki. Við unnum svo verkefni tengt þessu efni. Í Art rifjuðum við upp færnina Að hlusta síðan tókum við færnina Að tala fallega fyrir. Einnig var málörvun þar sem krakkarnir vou að ríma. Það eru ný verkefni á stöðvum eins og að tálga í útikennslu í listamsiðju er unnið með sjávardýrin, verkefnahefti í verkefnavinnu, einingakubbar þar er verið að byggja bryggjur og skip, hlutverkaleikur þá eru föt og allskyns glingur í boði og gömul ilmvatnsglös o.f.l.
Eiríkur prestur kom til okkar í dag og sagði okkur sögu og söng nokkur lög með okkur.
Það hafa orðið starfsmannabreytingar hjá okkur hún Steinunn er komin til okkar hingað á Skógarkot og Móa er komin á Móakot einnig er hún Aþena byrjuð að vinna hjá okkur hér á Undralandi og kemur hún til með að koma við á öllum deildum:)
nóvember 5th, 2010
Birgir Valur átti afmæli 1.nóvember og Mikael Grétar 31.október og óskum við þeim til hamingju með afmælin sín:
Posted by skogarkot,
in Uncategorized
1 Comment »
október 26th, 2010
Við fórum í skólaheimsókn í dag og fórum í heimsókn til hennar Sigríðar Helgu í myndlist, þar vorum við að vinna með leir og teikna. Það er mikið perluæði hér á deildinni og búið að gera mikið af flottum fígúrum, hjörtum , stjörnum , fánum o.f.l. Við erum líka búinn að lita mörg flott sjávardýr og klippa út og hengja upp á vegg hjá okkur. Í Snillingastundum höfum við verið að vinna með Núma, farið í leiki og unnið pappírspésa. Hún Guðrún Hulda varð 5 ára 21.10 og við óskum henni til hamingju með daginn.
Kv. Adda Sigga
Posted by skogarkot,
in Uncategorized
1 Comment »